Ísland í fararbroddi í baráttunni gegn sýklaónæmum bakteríum

Í gær voru á Alþingi samþykktar umtalsverðar breytingar á lögum um dýrasjúkdóma sem leggja bann við dreifingu matvæla sem innihalda salmonellu og kampýlóbakter, og afurðum sem innihalda ákveðnar gerðir sýklaónæmra baktería. Framsóknarmenn hafa á yfirstandandi þingi barist fyrir málinu og eru að vonum sáttir með árangurinn“ Ísland er núna í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis, og íslenskir bændur óttast ekki samkeppni erlendis frá, þar sem hún er á jafnréttisgrunni, það er lykilatriði og allt tal um eitthvert annað er bara rangt,“ segir Þórarinn Ingi Pétursson þingmaður Framsóknarflokksins. Þórarinn segir bannið setja sjálfkrafa takmörk á innflutning á hráu kjöti “ Ef þessi mikilvægustu skref Alþingis hefðu ekki verið stigin værum við búin að opna á innflutning á hráu kjöti, eins og heildsalar og ákveðin stjórnmálaöfl þeim hliðholl, hafa krafist. Íslensk stjórnvöld væru þá einfaldlega að gera tilraun sem allar líkur eru á að endi með ósköpum. Bæði varðandi sýkingar í matvælum og sýklalyfjaónæmi sem virtar alþjóðlegar stofnanir og vísindamenn telja að muni draga fleiri jarðarbúa til dauða árið 2050 en ógnvaldurinn krabbamein. Tilraunastarfsemi af því tagi gerist ekki á vakt okkar Framsóknarmanna. Og ótrúlegt að verslunin hafi verið tilbúin að taka þátt í slíkri tilraunastarfsemi í skiptum fyrir fleiri krónur í kassann,“ segir Þórarinn Ingi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila