Jón Þór segir Birgittu vera forsætisráðherraefni Pírata

jonthor54Jón Þór Ólafsson fyrrverandi þingmaður og núverandi frambjóðandi Pírata segir Birgittu Jónsdóttur vera forsætisráðherraefni Pírata. Þetta var meðal þess sem fram kom í viðtali sænska sjónvarpsins við Jón Þór í gær þar sem hann var meðal annars spurður út í hugsanleg forsætisráðherraefni næstu ríkisstjórnar. Þá nefndi Jón Þór Katrínu Jakobsdóttur formann Vinstri grænna sem mögulegt forsætisráðherraefni, og sagði fjölmarga vilja sjá hana sem næsta forsætisráðherra þjóðarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila