Könnun: Gefa á börnum frí í skólanum til þess að tína rusl úti í náttúrunni

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja rétt að gefa börnum frí í skólanum til þess að tína rusl í náttúrunni. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að gefa börnum frí í skólanum til þess að tína rusl í náttúrunni?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 68 %
Nei 28 %
Hlutlaus 4 %

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila