Könnun: Tæp 88% telja rask í Víkurkirkjugarði vera helgispjöll

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru sammála Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta og telja að rask í Víkurkirkjugarði séu helgispjöll. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu sammála Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta að rask í Víkurkirkjugarði séu helgispjöll?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 87,9 %
Nei 9,3%
Hlutlausir 2,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila