Könnun: Telja að Ágúst Ólafur eigi ekki að segja af sér þingmennsku

Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar.

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar eigi ekki að segja af sér þingmennsku. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar að segja af sér þingmennsku?. Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 58,1 %
Já 34 %
Hlutlaus 7,8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila