Könnun: Telja að herða þurfi viðurlög gagnvart vímefnaakstri

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að herða þurfi viðurlög gagnvart vímuefnaakstri. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um verslunarmannahelgina og var mikill meirihluti á þeirri skoðun að herða þurfi viðurlögin. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en i þessari könnun var spurt: Þarf að herða viðurlög við vímuefnaakstri? Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 90,5%
Nei 6,5%
Hlutlaus 2,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila