Kristján Þór situr Norðurlandaráðsþing í Helsinki í fjarveru forsætisráðherra

Norðurlandaráðsþing verður sett á morgun, þriðjudaginn 31. október, í Helsinki. Vegna mikilla anna Bjarna Benediktssonar  forsætisráðherra, mun Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra, sem jafnframt er samstarfsráðherra Norðurlanda, vera staðgengill forsætisráðherra, og taka þátt í störfum þingsins og forsætisráðherrafundum þeim tengdum.
Á upphafsdegi þingsins mun staðgengill forsætisráðherra taka þátt í þemaumræðu forsætisráðherranna undir yfirskriftinni „Norðurlönd samþættasta svæði heims“.
Á miðvikudag 1. nóvember munu forsætisráðherrar Norðurlandanna funda í eigin ranni og í framhaldi með leiðtogum Grænlands, Færeyja og Álandseyja. Einnig munu forsætisráðherrarnir funda með forsætisnefnd Norðurlandaráðs, forseta þess og framkvæmdastjóra. Þá er hefð fyrir því að forsætisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja fundi í tengslum við fundi Norðurlandaráðs.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila