Kveikt í bílum við bílaumboð Öskju

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað úr rétt fyrir klukkan fimm í morgun vegna elds í bifreiðum við bílaumboðið Öskju. Þegar slökkviliðið kom á vettvang logaði eldur í sjö bifreiðum en vel gekk að ráða niðurlögum eldsins. Bílarnir sem um ræðir voru nýlegir en grunur leikur á að eldurinn hafi kviknað af manna völdum. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila