Landsvirkjun og Advania gera rafmagnssamning

landsvirkjunLandsvirkjun og Advania hafa undirritað samning um afhendingu á rafmagni til gagnavers Advania á Fitjum. Samningurinn gerir Advania kleift að halda áfram að tryggja vöxt gagnaversreksturs fyrirtækisins og hefst afhending samkvæmt samningi fyrir árslok 2016.
Orkan verður afhent úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar. Landsvirkjun á og rekur 16 aflstöðvar, þar af 14 vatnsaflsstöðvar, tvær jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur. Sem stendur er Landsvirkjun að reisa nýja jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum á Norðausturlandi og einnig standa yfir framkvæmdir við stækkun vatnsaflsvirkjunar við Búrfell á Suðurlandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar segist ánægður með samninginn „Það er ánægjulegt að fá Advania í viðskiptavinahóp Landsvirkjunar. Á Íslandi eru kjöraðstæður fyrir rekstur gagnavera og undanfarin ár hefur Landsvirkjun unnið að því að kynna Ísland sem ákjósanlegan stað fyrir gagnaver. Góður vöxtur Advania og annarra gagnaversfyrirtækja á Íslandi byggist á hagstæðum og öruggum orkusamningum til langs tíma, samkeppnishæfu umhverfi og samvinnu hagsmunaaðila í greininni hér á landi.“
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania telur samninginn styrkja stöðu Advania „Umfang Advania á gagnaversmarkaði hefur vaxið mjög á undanförnum árum og stór verkefni eru í farvatninu fyrir komandi misseri. Aðgengi að orku er einn mikilvægasti þátturinn í rekstri gagnavera og því er það okkur mikil ánægja að gera þennan samning við Landsvirkjun sem við teljum að styrki getu okkar til að þjónusta fleiri alþjóðlega viðskiptavini í framtíðinni.
Í tilkynningunni segir að Advania sé öflugt norrænt upplýsingatæknifyrirtæki með starfsemi á Íslandi, í Svíþjóð og Noregi og að um 1.000 manns starfi hjá fyrirtækinu, á 20 starfsstöðvum. Advania rekur gagnaver á Steinhellu í Hafnarfirði og á Fitjum í Reykjanesbæ. Samningurinn gerir fyrirtækinu kleift að halda áfram að vaxa og bæta við viðskiptavinum sem hýsa tölvukerfi í gagnaverum þess.
Landsvirkjun hefur undanfarin ár stutt við vöxt gagnaversiðnaðar á Íslandi, sem hefur mikla möguleika til þess að vaxa hér á landi. Hagstæðir og öruggir langtíma raforkusamningar gera Ísland að samkeppnishæfu umhverfi fyrir gagnaver og að auki hentar kalt og stöðugt loftslag landsins einkar vel fyrir rekstur gagnavera. Þá fullnægja fjarskiptatengingar til landsins kröfum um stöðugleika og flutningsgetu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila