Lára spáir í kosningarnar: Vigdís verður borgarstjóri

Lára Ólafsdóttir sjáandi og miðill.

Vigdís Hauksdóttir verður næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Þetta kemur fram í spá Láru Ólafsdóttur sjáanda og miðils en hún var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag. Lára greindi frá því í þættinum að hún sæi konu í stól borgarstjóra og sú kona væri Vigdís “ já það hefur nú svolítið sótt að mér að undanförnu, Vigdís er að fara að gera góða hluti í þessum kosningum„,segir Lára. Þá sagði Lára að hún sæi fyrir að einhvers konar klúður verði varðandi kosningarnar á Suðurlandi. Rétt er að taka fram að spá Láru er eingöngu samkvæmisleikur, lesendum og hlustendum til skemmtunar. Hlusta má á viðtalið hér fyrir neðan.

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila