Látinn eftir rútuslysið í Eldhrauni

Kínverskur karlmaður sem var einn þeirra 44 sem slösuðust í rútuslysi í Eldhrauni á milli jóla og nýárs er látinn. Maðurinn sem var fæddur árið 1996 kom ásamt hópi kínverskra ferðamanna sem einnig slösuðust í slysinu en hópurinn hafði í hyggju að eyða jólum og áramótum hér á landi. Enn liggja nokkrir hinna slösuðu enn á sjúkrahúsi, þar á meðal bílstjóri bifreiðarinnar og er fólkið á hægum batavegi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila