Leggur til að þóknanir vegna funda i nefndum og ráðum verði bannaðar

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi sósíalista ætlar á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar að leggja fram tillögu þess efnis að kjörnum fulltrúum borgarinnar verði óheimilt að þiggja þóknun vegna setu á fundum í nefndum og ráðum sem haldnir eru á vinnutíma. Sanna segir að núverandi fyrirkomulag afhjúpi í raun spillingu stjórnmálaforystunnar „Það hefur eitthvað farið alvarlega aflaga í stjórnmálum þegar borgarstjóri Reykjavíkur og bæjarstjórar nágrannasveitarfélagana eru farnir að taka sér hærri laun en borgarstjórar New York, London og París,við ættum að horfast í augu við að þessi laun afhjúpa spillingu stjórnmálaforystunnar og við ættum að gera eitthvað í því. Fyrsta skrefið ætti að vera að banna þessu fólki að taka þóknanir fyrir fundi sem það situr í vinnutíma sinnar aðalvinnu og sem eru því augljóslega hluti af þeim starfsskyldum sem það fær greitt fyrir af föstu launum.“, segir Sanna.
Daníel Örn Arnarson varaborgarfulltrúi sósíalista tekur í sama streng „Almenningur þolir þetta ekki lengur, þetta er út úr öllu korti og er ekkert annað sjálftaka æðstu stjórnenda sveitarfélaganna. Og sjálftaka stjórnenda er alvarlegt mál. Hún er ekki bara eitur í stjórnkerfinu og innan stjórnmálanna, spilling sem grefur undan heiðarlegum stjórnmálum, heldur er hún algjörlega óþolandi vanvirðing gagnvart heiðarlegu starfsfólki. Konan sem skúrar skrifstofu Dags B. Eggertsson er líklega með lágmarkslaun, 300 þúsund krónur á mánuði. Dagur sjálfur tekur síðan 330 þúsund krónur í þóknun fyrir einn klukkutíma á fundi hjá slökkviliðinu. Borgarfulltrúar verða að stoppa þetta. Þó ekki væri nema af virðingu fyrir konunni sem skúrar skrifstofu borgarstjóra“, segir Daníel.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila