Leitað að Birnu á Strandaheiði

bjorgunarsveitLeit að Birnu Brjánsdóttur er hafin á Strandaheiði vegna ábendinga frá almenningi. Auk þess er leitað áfram í og við Hafnarfjarðarhöfn. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvers eðlis ábendingarnar eru sem hafa leitt til þess að leit var hafin á Strandaheiði. Þá er von á grænlenska togaranum Polar Nanoq til Hafnarfjarðar í kvöld, en lögregla mun ræða við áhöfnina í tengslum við rannsókn málsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila