Leitinni haldið áfram við Hafnarfjarðarhöfn

loggubillLeitinni að Birnu Brjánsdóttur verður haldið áfram við Hafnarfjarðarhöfn í dag en eins og kunnugt er fundust skór á svæðinu í gærkvöld áþekkir þeim sem Birna gekk í þegar hún hvarf, aðfararnótt laugardags. Að sögn lögreglu leiða sterkar líkur að því að skórnir sem fundust tilheyri Birnu og því er lögð áhersla lögð á að leita á þeim slóðum sem skórnir fundust en þeir fundust við athafnasvæði Atlantsolíu. Leit stóð yfir í og við höfnina í alla nótt en gúmmíbátur sigldi meðal annars um höfnina með leitarmönnum innanborðs.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila