Lesendur Daily Express telja að Ísland eigi ekki að ganga í ESB

brusselÍ könnun sem blaðið Daily Express gerði meðal lesenda sinna kemur fram að 94% þeirra sem tóku þátt telji að Ísland eigi ekki að ganga í ESB. Könnunin var gerð í tilefni stjórnarmyndunarviðræðna Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar og í umfjölluninni er vitnað í orð Óttars Proppé um að samsteypustjórnin vilji þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort endurvekja eigi aðildarviðræðurnar. Fram kemur í umfjölluninni að 64% íslendinga séu á móti inngöngu í ESB en að 36% styðji inngöngu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila