Lögðu hald á skotvopn, fíkniefni og fjármuni við húsleit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í síðustu viku hald á skotvopn, fíkniefni og fjármuni við húsleit á heimili í umdæminu. Um var að ræða bæði haglabyssu og skammbyssur en að auki fundust skotfæri sem tilheyrðu vopnunum. Þá fundust einnig á sama stað nokkuð af fíkniefnum, en talið er að um sé að ræða amfetamín, kókaín og e-töflur. Þá var hald lagt á töluverða fjármuni, en grunur leikur á að þeir séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Lögreglan tók enn fremur í sína vörslu stera sem fundust í húsnæðinu. Húsráðandi, karl um fertugt, var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.
Lögreglan vill minna almenning á ábendingarsímann 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila