Lögregla leitar manns vegna ráns í apóteki

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar mannsins á myndinni vegna ráns í apóteki á Bíldshöfða í Reykjavík skömmu fyrir klukkan 10 í gærmorgun, 16.3.2017. Maðurinn, sem huldi andlit sitt með klút, var vopnaður hnífi. Ræninginn er  talin vera grannvaxinn, klæddur í rauða peysu, gallabuxur og með húfu. Hann var með svartan bakpoka meðferðis. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið, eða telja sig hafa séð til ferða mannsins eru beðnir um að senda einkaskilaboð á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða senda tölvupóst í netfangið as@lrh.is. Ef einhverjir verða mannsins varir skal hringja strax í lögreglu í síma 112.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila