Lögreglan lýsir eftir ungum manni

Kári Sigurgeirsson

Kári Sigurgeirsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kára Sigurgeirssyni.Kári er 28 ára gamall en síðast sást til hans í gær á höfuðborgarsvæðinu. Kári er 28 ára gamall, 174 cm á hæð með dökk skollitað hár. Síðast þegar sást til Kára var hann klæddur í svartan jakka og gráar joggingbuxur. Þeir sem geta gefið upplýsingar um dvalarstað Kára eða búa yfir upplýsingum um ferðir hans eru vinsamlega beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila