Lögreglan óskar eftir að ná tali af ökumanni vegna hvarfs Birnu

raudurkia1212Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni rauðrar smábifreiðar, sem talin er af gerðinni  Kia Rio sem ekið var vestur Laugaveg til móts við hús númer 31 kl.05:25 aðfararnótt laugardagsins 14.janúar. Þessara upplýsinga er óskað eftir vegna leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur sem sást til síðast við umrætt hús á þeim tíma sem bifreiðinni var ekið þar hjá. Ökumaðurinn er beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444.1109, þá eru jafnframt allir þeir sem telja sig hafa vitneskju um afdrif Birnu beðnir um að hafa samband.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila