Málefni Norðurslóða í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Finnlands

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, og Guðlaugur Þór Þórðarson á málþinginu í gær.

Tvíhliða samskipti Íslands og Finnlands, málefni norðurslóða, Norðurlandasamstarfið, Evrópumál og öryggis- og varnarmál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, á fundi þeirra sem fram fór í gær á Síldarminjasafninu á Siglufirði. Soini, sem er staddur hér á landi í vinnuheimsókn, kynnti sér jafnframt atvinnulíf og starfsemi fyrirtækja á Tröllaskaga.

Málefni norðurslóða og Norðurskautsráðsins voru ofarlega á baugi í heimsókninni, en Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu af Finnlandi í maí. Ráðherrarnir sóttu síðdegis sérstakt málþing í Háskólanum á Akureyri um norðurslóðir þar sem gerð var grein fyrir því þróttmikla starfi sem háskólinn og stofnanir á Akureyri inna af hendi og tók fjölmenni þátt í skoðanaskiptum við ráðherrana. Guðlaugur Þór hélt ávarp á málþinginu þar sem hann gerði meðal annars grein fyrir undirbúningi fyrir formennsku Íslands að Norðurskautsráðinu. Þar verður leiðarljósið sjálfbærni í efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu tilliti og áherslum beint að hafinu, umhverfisvænum orkulausnum og styrkingu samfélaga á norðurslóð.

Samskipti Íslands og Finnlands eru sérlega náin og góð, og málefni norðurslóða og Norðurskautsráðsins eru okkur afar hugleikin nú þegar Ísland tekur senn við keflinu af Finnlandi. Því var kærkomið að heimsækja Akureyri sem er hin eiginlega norðurslóðamiðstöð okkar Íslendinga og kynnast því merka starfi sem þar fer fram. Þá er ávallt gaman að varpa ljósi á lífið utan höfuðborgarsvæðisins. Að þessu sinni kynntum við okkur þá uppbyggingu sem á sér stað á Siglufirði og víðar á Tröllaskaganum, og kunnum við heimafólki bestu þakkir fyrir höfðinglegar móttökur,“ sagði Guðlaugur Þór.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila