Mikil eftirvænting og spenna fyrir leikinn í dag

Mikil spenna ríkir hjá íslensku þjóðinni fyrir leik íslenska landsliðsins gegn Nígeríu á HM í Rússlandi í dag. Strákarnir munu að sjálfsögðu leggja allt undur fyrir leikinn enda mun leikurinn skera úr um framhaldið á gengi Íslands á HM.

Í dag kl.12:15 mun Arnþrúður Karlsdóttir ræða við Hauk Hauksson í beinni útsendingu en eins og kunnugt er þá er Haukur staddur á HM. Haukur mun að sjálfsögðu lýsa þeirri gríðarlegu stemningu sem ríkir meðal stuðningsmanna beggja liða og segja hlustendum frá öllum nýjustu fréttum frá HM.
Eins og fyrr segir hefst viðtal Arnþrúðar við Hauk kl.12:15.

Hlustaðu í beinni hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila