Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnir síðari áfanga starfsins

Nefnd forsætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnti afrakstur vinnu sinnar í síðari áfanga nefndarstarfsins á blaðamannafundi í dag í Þjóðminjasafninu. Eiríkur Jónsson, prófessor og formaður nefndarinnar, sá um kynninguna og svaraði spurningum fjölmiðla að kynningu lokinni.

Nefndin skilaði fjórum frumvörpum til ráðherra sem bætast í hóp fimm frumvarpa sem nefndin vann í fyrri áfanga nefndarstarfsins. Nefndin hefur nú lokið verkefnum sínum samkvæmt skipunarbréfi en forsætisráðherra hyggst jafnframt fela nefndinni að gera tillögur til stjórnvalda um hvernig bregðast megi við upplýsingaóreiðu á grundvelli lýðræðislegra grundvallarreglna.

Frumvörpin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda:

  1. Frumvarp um breytingar á upplýsingalögum
  2. Frumvarp um vernd uppljóstrara
  3. Frumvarp um breytingar á lögum um kyrrsetningu
  4. Frumvarp um breytingar á lögum um fjölmiðla

 

Í nefndinni sátu: Eiríkur Jónsson, prófessor, formaður, Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, varaformaður, Birgitta Jónsdóttir, stjórnarformaður International Modern Media Initiative (IMMI), Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Rut Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður, Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Þorgeir Ólafsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu (fram til 11. janúar sl. Elísabet Pétursdóttir). Með nefndinni starfaði Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila