Niðurstöður úttektar á öldrunarþjónustu afhentar ráðherra

Verkefnastjórn sem falið var að kanna stöðu öldrunarþjónustu sem fellur undir hluta heilbrigðismála hefur skilað af sér niðurstöðum könnunarinnar til Óttars Proppé heilbrigðisráðherra. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra segir mikinn feng í þeirri vinnu sem birtist í niðurstöðum starfshópsins og því mikilvægt að koma upplýsingunum á framfæri. Hópurinn hafi verið skipaður sérfræðingum sem lögðu víðtæka þekkingu sína af mörkum og höfðu jafnframt víðtækt samráð við fjölda fagfólks, stofnana og hagsmunaaðila með þekkingu á málaflokkinum.
Meðal þess sem verkefnisstjórnin leggur til sem stefnumarkandi áherslur er að stóraukin áhersla verði lögð á heilsugæslu, forvarnir og endurhæfingu til að efla heilbrigði og draga úr þörf fyrir ótímabæra stofnanavist með tilheyrandi kostnaði. Óttarr segir auðvelt að taka undir þessar áherslur og að þær eigi góðan samhljóm með samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar: „Þar er lýst vilja til að gera forvörnum og lýðheilsu hátt undir höfði og jafnframt að setja aukinn þunga í uppbyggingu öldrunarþjónustu, með áherslu á heimahjúkrun og hjúkrunarheimili, fjölgun rýma í dagdvöl og styttri bið eftir þjónustu.
Ég hvet fólk til að kynna sér meðfylgjandi niðurstöður starfshópsins, því þetta er mikilvægt innlegg í umræðu um árangursríkar leiðir til að efla og bæta þjónustu við aldraða og þetta mun að sjálfsögðu nýtast við víðtæka stefnumótun til framtíðar á sviði heilbrigðismála. Öll umræða um þau mál er nauðsynleg og góð,“ segir Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila