Ráðherra afhent skýrsla um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga

Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Óttar Proppé heilbrigðisráðherra.

Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Óttar Proppé heilbrigðisráðherra.

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga afhenti Óttari Proppé heilbrigðisráðherra í gær skýrslu sem félagið hefur tekið saman um stöðu mönnunar í hjúkrun. Félagið lýsir áhyggjum af viðvarandi skorti á hjúkrunarfræðingum og leggur til aðgerðir til að bregðast við vandanum.

Í skýrslunni segir að greining á vinnumarkaði hjúkrunarfræðinga hafi leitt í ljós að tæp 70% menntaðra hjúkrunarfræðinga séu félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og að um 1.000 hjúkrunarfræðingar hér á landi starfi við annað en hjúkrun. Þá sýni könnun sem gerð var á mönnun við hjúkrun á heilbrigðisstofnunum að þar vanti um 290 hjúkrunarfræðinga í um 225 stöðugildi, en meðalstarfshlutfall hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum er um 70%.
Skortur á hjúkrunarfræðingum er meiri ef horft er til mats framkvæmdastjóra hjúkrunar og hjúkrunarforstjóra á heilbrigðisstofnunum en samkvæmt því vantar hjúkrunarfræðinga í um það bil 400 stöðugildi í samtals um 520 stöður.
Auk Guðbjargar sátu fundinn frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga Gunnar Helgason, sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs og Aðalbjörg Finnbogadóttir, sviðsstjóri fagsviðs. Á fundinum þar sem þau kynnti efni skýrslunnar fyrir ráðherra ræddu þau einnig um að nýliðun í hjúkrun sé einnig áhyggjuefni, þar sem á næstu árum muni hún ekki gera meira en að haldast í hendur við þann fjölda hjúkrunarfræðinga sem hefur töku lífeyris á næstu árum. Spá um mönnun í hjúkrun á árunum 2017 – 2021 sýni að skortur á hjúkrunarfræðingum verði viðvarandi áfram. Þá megi ekki horfa fram hjá því að þörfin fyrir heilbrigðisstarfsfólk fari vaxandi eftir því sem þjóðinn eldist með hækkandi hlutfalli aldraðra.
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra þakkaði á fundinum fyrir góða skýrslu og sagði efni hennar brýn og áríðandi að finna árangursríkar lausnir til að styrkja grundvöll heilbrigðisstétta þar sem mönnun er vandamál. Hann áréttaði mikilvægi þess að taka á verkefninu í sameiningu og lýsti áhuga sínum til samstarfs, þar sem hann væri reiðubúinn að ræða jafnt við félagið og heilbrigðisstofnanir um leiðir. Guðbjörg nefndi í þessu samhengi þörf fyrir aukið fé til menntunar hjúkrunarfræðinga, bætt launakjör og ýmsa þætti sem lúta að bættu starfsumhverfi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila