Ráðherra fundaði með formanni grænlensku landsstjórnarinnar

Kim Kielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, átti fund í dag með Kim Kielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, en Kielsen fer einnig með umhverfismál í landsstjórninni. Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir meðal annars úrgangsmál sem er stórt viðfangsefni í Grænlandi, loftslagsmál, ferðamál og náttúruvernd, málefni Norðurslóða og samskipti landanna tveggja. Síðdegis mun Kielsen heimsækja Sorpu, Endurvinnsluna og Úrvinnslusjóð til að kynna sér hvernig úrgangs og sorphirðumálum er háttað hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila