Ríkisstjórnin heldur sumarfund í Langaholti í Snæfellsbæ

Ríkisstjórnin mun í dag halda sumarfund í Langaholti í Snæfellsbæ. Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að þegar ríkisstjórnarfundinum lýkur muni ríkisstjórnin funda með fulltrúum sveitarstjórna á Vesturlandi. Á þeim fundi verður m.a. farið yfir áherslur ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmálanum og mál sem rædd voru á ríkisstjórnarfundinum og tengjast byggðamálum. Þá munu fulltrúar sveitarstjórna á svæðinu fara yfir stöðu mála og kynna sín helstu áherslumál. Þá verður haldinn blaðamannafundur í kjölfarið sem áætlað er að muni hefjast kl.14:30.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila