Samningur um leigjendaaðstoð endurnýjaður

Neytendasamtökin munu áfram sinna leigjendaaðstoð fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið sem undirritaður var í vikunni, en Neytendasamtökin hafa sinnt þessari þjónustu frá árinu 2011.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, undirritaði samninginn ásamt Hrannari Má Gunnarssyni, stjórnanda leigjendaaðstoðarinnar, fyrir hönd Neytendasamtakanna. Samningurinn gildir til næstu áramóta.
Þjónustan samkvæmt samningnum felur í sér að sjá leigjendum íbúðarhúsnæðis fyrir nauðsynlegum upplýsingum um réttarstöðu sína og að veita ráðgjöf þegar upp kemur ágreiningur vegna leigusamninga um íbúðarhúsnæði.
Ásmundur Einar segir það margsannað hve mikilvægt sé að leigjendur geti leitað sér ráðgjafar og átt greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu sína og réttindi hvað það varðar. Það sé á ýmsan hátt flókið að vera á leigumarkaði og fólk þurfi að vera meðvitað um að nýta þann rétt sem það hefur, til að mynda réttinn til húsnæðisbóta sem margir á leigumarkaði virðist ekki þekkja.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila