Sigmundi Davíð fagnað á flokksþinginu

sigmundurdavidSigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Framsóknarflokksins var ákaft fagnað er hann hélt ræðu sína á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag. Sigmundur sagði meðal annars í ræðu sinni að ef hann hlyti endurkjör sem formaður flokksins væri hann manna fyrstur til þess að leiða stríðandi fylkingar innan flokksins saman til sátta. Þá sagði Sigmundur að nú ættu Framsóknarmenn fyrst og fremst að vinna að hugsónum sínum “ einsetjum okkur nú að fyrir aldarafmælið að við verðum byrjuð að leiða íslenskt samfélag eftir þeim gullna meðalvegi sem liggur að landi vona okkar„,sagði Sigmundur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila