Skipað í ráðgjafarnefnd Landspítala

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Landspítalanum ráðgjafarnefnd til næstu fjögurra ára. Formaður nefndarinnar er Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.

Í nefndinni eru níu aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin verður forstjóra og framkvæmdastjórn „til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans“.

Nefndin fjalla meðal annars um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir spítalans og langtímastefnu hans.

Tengsl spítalans við þjóðfélagið efld og áhrif notenda þjónustunnar aukin.

Í erindisbréfi sem nefndarmönnum hefur verið afhent segir meðal annars að tilgangur með starfsemi nefndarinnar sé að efla tengsl Landspítala við þjóðfélagið og möguleika notenda þjónustunnar til að hafa áhrif á starfsemi og þjónustu Landspítala.

Aðalmenn eru:

  • Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands,
  • Formaður : Óskar Reykdalsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
  • Varaformaður : Jón Kristjánsson,
  • Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
  • Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
  • Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Landssambands eldri borgara
  • Helga Jónsdóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
  • Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri BSRB
  • Forstjóri : Hrafnistu Vilmundur Guðnason, prófessor og forstöðumaður Hjartaverndar

Varamenn eru:

  • Hjalti Þór Vignisson, fyrrverandi sveitastjóri
  • Sveinn Guðmundsson, formaður Hjartaheilla
  • Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna
  • Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar
  • Anna Stefánsdóttir, formaður Spítalans okkar
  • Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
  • Reynir Tómas Geirsson, fyrrum prófessor og fæðingarlæknir
  • Henny Hinz, hagfræðingur ASÍ
  • Andri Snær Magnason, rithöfundur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila