Skoðanakönnun: Miðflokkurinn og Flokkur fólksins með mest fylgi

Flestir myndu kjósa Miðflokkinn og Flokk fólksins ef gengið yrði til Alþingiskosninga í dag. Þetta kemur fram í niðurstöðu skoðanakönnunar Útvarps Sögu um fylgi flokkana sem fram fór um helgina. Samkvæmt niðurstöðunni eru flokkarnir tveir nánast hnífjafnir en Miðflokkurinn mældist með 39,2% en Flokkur fólksins með 38,3%. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvaða flokk myndir þú kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Miðflokkurinn 38,2%
Flokkur fólksins 38,3%
Sjálfstæðisflokkurinn 8,5%
Annað 5,3%
Samfylkinguna 3,2%
Framsóknarflokkinn 3%
Pírata 1,2%
Vinstri græna 0,8%
Viðreisn 0,8%
Greidd voru 507 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila