Staðfest að skóparið er í eigu Birnu Brjánsdóttur

myndfundurSkópar sem fannst síðastliðna nótt við birgðastöð Atlantsolíu er í eigu Birnu Brjánsdóttur. Þetta staðfesti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fyrir stundu. Eins og kunnugt er hefur lögreglan og björgunarsveitir leitað sleitulaust að Birnu í Hafnarfjarðarhöfn eftir að skórnir fundust í gærkvöld en án árangurs. Snjór sem var undir skónum hefur valdið lögreglu talsverðum heilabrotum þar sem sú staðreynd komi ekki heim og saman við það veðurlag sem var á þeim tíma sem Birna hvarf. Þá lagði lögreglan hald á rauða Kia Rio bifreið í Kópavogi í dag í þágu rannsóknar málsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila