Stefna að því að Norræn fyrirtæki geti miðlað efnahagsupplýsingum á skilvirkari máta

Verkefninu Nordic Smart Government 3.0 sem hleypt var af stokkunum á fundi norrænna atvinnumálaráðherra á dögunum er ætlað að miða að því að Norðurlöndin verði gagnsætt og stafrænt svæði þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki geti miðlað efnahagsupplýsingum á öruggan hátt í rauntíma.
Fram kemur í tilkynningu að verkefnið opni nýja möguleika fyrir fyrirtæki og stofnanir að fá lánaupplýsingar og auki þar með gagnsæi og auðveldi samstarf milli fyrirtækja. Upplýsingagjöfin á auk þess að geta átt sér stað þvert á norræn landamæri og standa vonir til þess að verkefnið auki nýsköpunarkraftinn á öllum Norðurlöndum.
Í dag er oft á tíðum erfitt að fá nýjar fjárhagsupplýsingar um lítil og meðalstór fyrirtæki þar sem  ársskýrslur þeirra séu oft einu heimildirnar og upplýsingarnar sem skýrslurnar veiti geti verið úreltar. Þegar kerfið er gert sjálfvirkt verði hægt á öruggan hátt að fá nýjar upplýsingar um efnahagslega stöðu fyrirtækis.
Ég bind miklar vonir við framgang þessa verkefnis enda mun það hafa í för með sér að stjórnsýslubyrði léttist og þeir sem þurfa á upplýsingum að halda geta nálgast þær á nánast rauntíma með öruggari hætti en áður. Þannig verður ákvarðanataka fyrirtækja og opinberra aðila byggð á traustari grunni“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Nordic Smart Government 3.0 styður sýn norrænu forsætisráðherranna um að Norðurlöndin verði samþættasta svæði heims. Verkefnið stuðlar að alþjóðlegri forystu Norðurlandanna og áætlunin getur sömuleiðis orðið vegvísir fyrir Evrópusambandið til þess að koma á fót fyrirtækjaumhverfi með meiri samkeppnishæfni, nýsköpun og hagvexti,“ segir framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Dagfinn Høybråten.

Gervigreind og snjallar samgöngur á dagskrá

Á fundinum í Stokkhólmi ákváðu ráðherrarnir einnig að auka samstarfið á sviði gervigreindar og snjallra samgangna. Á samgöngusviðinu veittu ráðherrarnir stuðning sinn við verkefni sem snýr að grænum, stafrænum og samkeppnishæfum samgöngum og ferðum. Gert er ráð fyrir því að Norðurlöndin geti tengt saman samgöngukerfi sín fyrir fólk, vörur og eignir ásamt því að tengja saman upplýsingakerfi. Þetta er gert til þess að nýta hæfni hvers annars og ná heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila