Synir Egils: Átök í forustu sjómanna og ástandið á húsnæðismarkaðnum

Sigurjón M. Egilsson og Gunnar Smári Egilsson.

Átökin í forustu sjómanna, neytendamál og ástandið á húsnæðismarkaði var aðal umfjöllunarefni þáttarins Annað Ísland í dag en til að ræða þessi mál voru fengnir gestir úr mörgum ólíkum áttum. Heiðveig María sem býður sig fram til formanns Sjómannafélags Íslands var fyrsti gestur þáttarins og greindi þar frá sýn sinni í kjarabaráttu sjómanna, en hún segir meðal annars að núverandi forustumenn séu ekki að standa vaktina og því þurfi nýtt fólk að koma að málum. Þá komu þrír frambjóðendurtil formanns Neytendasamtakanna og sögðu frá sínum áherslumálum og sýn á neytendamálin. Ólafur Margeirsson hagfræðingur kom einnig og ræddi húsnæðismálin, skatta og lífeyrissjóðsmálin. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila