Telja að svindlað hafi verið í formannskosningum Framsóknarflokksins

votebox11Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að svindlað hafi verið í formannskosningum Framsóknarflokksins sem fram fóru um helgina. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að svindlað hafi verið í formannskosningunum á flokksþingi Framsóknarflokksins?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 59,76%
Nei 30,56%
Hlutlaus 9,68%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila