Telja að vísa eigi Íslandi úr Eurovision vegna mótmæla Hatara á úrslitakvöldinu

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að vísa eigi Íslandi úr Eurovision vegna mótmæla Hatara á úrslitakvöldinu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að vísa Íslandi úr Eurovision vegna mótmæla Hatara á úrslitakvöldinu?. Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 62,4%
Nei 33,8%
Hlutlaus 3,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila