Þrír í haldi vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi

Þrír einstaklingar er í haldi lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar á umfangsmikilli brotastarfsemi. Í tilkynningu frá lögreglu vegna málsins segir að einstaklingarnir séu á fertugs og fimmtugsaldri. Rannsókn lögreglu beinist meðal annars að fíkniefnamisferli og peningaþvætti, en ráðist var í þrjár húsleitir vegna þessa og var um umfangsmiklar aðgerðir að ræða. Þetta er annað málið af þessu tagi sem kemur upp með stuttu millibili en í síðustu viku voru fjórir handeknir í óskyldu en sambærilegu máli, þeir sitja í gæsluvarðhaldi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila