Tölvuleikurinn Minecraft nýttur til stærðfræðikennslu í grunnskólum

Tölvuleikurinn Minecraft sem nýtur mikilla vinsælda víða um heim er nýttur á fremur óhefðbundinn hátt í grunnskólum hérlendis og er leikurinn notaður til stærðfræðikennslu. Í gær buðu kennarar í Fossvogsskóla, Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra að kynnast því hvernig þessi vinsæli leikur er notaður við stærðfræðikennslu í 5. bekk. „Sköpun er meðal þeirra sex grunnþátta sem við viljum að einkenni skólastarf á Íslandi. Í aðalnámsskrá grunnskólanna er fjallað um mikilvægi hennar sem og fjölbreytilegs og frjós námsumhverfis. „Það var virkilega forvitnilegt að fylgjast með krökkunum læra af leiknum,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir að kennslustund lokinni. „Það verkefni kennarans að kveikja áhuga og forvitni á námsefninu er ekki einfalt. Árangur í námi grundvallast að miklu leyti á þessum áhuga svo það er mikið í húfi, en kennarar í dag eru duglegir að hugsa út fyrir kassann.“ segir Hjálmur Dór Hjálmsson, kennsluráðgjafi, sem hefur notað Minecraft í kennslu síðan haustið 2012, einkum í stærðfræði, íslensku og samfélagsgreinum. „Reynsla mín af Minecraft í kennslu er mjög góð. Minecraft er frábært verkfæri til að virkja sköpunargáfu nemenda í ólíkum námsgreinum og fyrir þá er mikill kostur að geta séð hlutina fyrir sér og eiga þannig auðveldara með að tengja við flóknari hugtök. Með Minecraft er hægt að gera námið skemmtilegt og kalla fram jákvæða upplifun af því fagi sem unnið er að hverju sinni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila