Ungur maður handtekinn í Sundahöfn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um ungann mann sem hafði farið inn á athafnarsvæði Eimskipa við Sundahöfn um ellefuleytið í gærkvöld. Lögreglan fór á staðinn og handtók manninn þar sem ljóst var að hann var þar í óleyfi en ekki er vitað hvers vegna maðurinn fór inn á svæðið. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila