Úthluta rúmlega 55 milljónum til verkefna í þágu sýrlenskra flóttamanna í Líbanon

Utanríkisráðuneytið hefur úthlutað 55,5 milljónum króna til þriggja verkefna Rauða krossins á Íslandi vegna átakanna í Sýrlandi. Um er að ræða verkefni í þágu sýrlenskra flóttamanna í  Líbanon og Tyrklandi en einnig fá bágstaddir heimamenn stuðning í tveimur verkefnanna.
Verkefnin snúa meðal annars að því að veita einstæðum mæðrum og fjölskyldum þeirra í Líbanon fjárstuðning með það að markmiði að bæta lífskjör þeirra. Hópurinn telur 150 fjölskyldur, um 750 einstaklinga, 120 fjölskyldur sýrlenskra flóttamanna og 30 líbanskar fjölskyldur sem búa við örbirgð.
Í tilkynningu segir að verkefni um vernd flóttafólks frá Sýrlandi í Tyrklandi sé víðtækt og nái til mannúðaraðstoðar í sinni víðtækustu merkingu. Verkefnið lúti einkum að vernd einstaklinga og hópum flóttamanna frá Sýrlandi í viðkvæmri stöðu en skráðir flóttamenn í Tyrklandi eru 3,4 milljónir. Þá segir að verkefnið sé hluti af stærra verkefni Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og samningi hennar við tyrknesk stjórnvöld um ferðir flóttafólks frá Sýrlandi til Evrópu.
Þriðja verkefnið lýtur að öruggri blóðgjöf, bæði fyrir sýrlenskt flóttafólk í Líbanon og heimamenn sem búa við kröpp kjör. Fram kemur að blóðgjöf sé hvergi í boði nema hjá Rauða krossinum og hluti flóttafólks þurfi á blóðgjöf að halda. Rauði krossinn telur mikilvægt að veita bágstöddu heimafólki sambærilega aðstoð til að draga úr spennu milli flóttamanna og heimafólks.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila