Hagsmunasamtök heimilanna hafa skorað á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að standa að gerð rannsóknarskýrslu á þeim ákvörðunum sem voru teknar og þeim aðgerðum sem farið var í gagnvart heimilum landsins eftir hrun.Í tilkynningu segir að Hagsmunasamtök heimilanna beini því enn fremur til alþingismanna og annarra sem eiga að láta hagsmuni almennings sig varða að styðja og berjast fyrir rannsókn á því sem gert var eftir hrun.
Þá segir að í haust verði liðin 10 ár frá fjármálahruni og segja samtökin að tími sé kominn til að heimilin njóti vafans og fái uppreist æru í baráttu sinni við „kerfi“ sem sé þeim vægast sagt fjandsamlegt.
Í tilkynningunni segir enn fremur” Það er ljóst að mjög margar af þeim aðgerðum sem farið var í eftir hrun ollu heimilum landsins stórfelldum skaða, skaða sem aldrei hefur verið viðurkenndur, skaða sem aldrei hefur verið metinn, skaða sem enn sér ekki fyrir endann á og heimilin sitja uppi með.
Hrunið sem ekki mátti persónugera með því að nefna neina þá sem léku aðalhlutverkin var persónugert í „Jónum og Gunnum“ þessa lands. Þeim hefur verið refsað og þau hafa borið byrðarnar á meðan afbrotamennirnir sjálfir hafa aðallega þurft að hafa áhyggjur af því að koma hagnaðinum, sem enn streymir til þeirra í gott skjól.“
Það er því að mati samtakanna brýn þörf á sambærilegri rannsóknarskýrslu og þeirri sem gerð var um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna en nú þarf að fjalla um aðgerðir stjórnvalda í kjölfar hrunsins og afleiðingar þeirra fyrir heimili landsins.
Meðal þess sem samtökin telji þörf á að rannsaka er:
· Stofnun nýju bankanna og yfirfærslu lánasafna gömlu bankanna til þeirra
· Afhendingu stórra eignarhluta í bönkunum til þrotabúa föllnu bankanna
· Úrlausnir mála vegna ólöglegra lánaskilmála og framferðis kröfuhafa
· Hversu margar fjölskyldur hafa verið sviptar heimilum sínum frá hruninu
· Hversu margar fjölskyldur voru hraktar að ósekju út á vonlausan leigumarkað og hver staða húsnæðismála væri núna ef það hefði ekki verið gert
· Greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara sem hefur reynst mörgum illa
· Ólöglegar vörslusviptingar ökutækja á grundvelli ólöglegra krafna
· Skortur á samráði við fulltrúa neytenda og samtök þeirra
Samtökin benda enn fremur á að:
· Verðtrygging húsnæðislána er skaðleg en hana er einfalt að afnema
· Málsmeðferð við nauðungarsölur og aðfarir brýtur í bága við mannréttindi
· Gengistryggð lán hafa ekki enn verið leiðrétt í samræmi við neytendarétt
· Úrvinnsla slíkra mála hingað til hefur brotið í bága við stjórnarskrárvarin réttindi neytenda og skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum
· Alþingi og dómstólar hafa verið blekkt af málflytjendum fjármálafyrirtækja
· Endurskoða þarf þær breytingar sem gerðar voru á vaxtalögum með lögum nr. 151/2010 neytendum í óhag og stöðva aðfarir á hendur heimilum á meðan
· Að dómstólar hafa ítrekað fellt dóma út frá hagsmunum fjármálafyrirtækja sem standast ekki skoðun út frá lögum og gildandi rétti.
Allar aðfarir og nauðungasöluferli þarf að sjálfsögðu að stöðva meðan á gerð skýrslunnar stendur – enda komið nóg af slíkum ófögnuði!
Þá segja samtökin að þau bjóði fram aðstoð sína við rannsóknina því innan þeirra vébanda leynist gífurleg þekking á málaflokknum auk ýmissa gagna sem rannsóknaraðilum væri fengur að.
“Við væntum skjótra svara um aðgerðir frá forsætisráðherra. Tíminn er að renna út, við höfum beðið í meira en 9 ár þau mega ekki verða 10.“segir í tilkynningunni.
Í síðdegisútvarpinu í dag komu þau Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Guðmundur Ásgeirsson erindreki samtakanna og ræddu um málið og kröfu samtakanna, en í þættinum sögðu þau meðal annars frá ótrúlegum vinnubrögðum banka og ýmissa stofnanna samfélagsins í málefnum heimilanna. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan.
