Vísindanefnd skipuð til næstu fjögurra ára

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö manna vísindasiðanefnd til næstu fjögurra ára. Hlutverk nefndarinnar er að meta vísindarannsóknir á heilbrigðissviði og tryggja að þær samrýmist vísindalegum og siðfræðilegum sjónarmiðum.
 Nefndinni er einnig ætlað að taka þátt í almennri og fræðilegri umræðu á vettvangi lífsiðfræði, veita ráðgjöf og birta leiðbeinandi álit um viðfangsefni á verksviði nefndarinnar. Lögum samkvæmt eru þeir sem skipa sæti í nefndinni einstaklingar með sérþekkingu á sviði aðferðafræði heilbrigðisvísinda, siðfræði, lögfræði og persónuverndar.

Formaður nýskipaðrar vísindasiðanefndar er Sunna Snædal Jónsdóttir. Aðrir nefndarmenn eru;

Rögnvaldur G. Gunnarsson, skipaður án tilnefningar,
Una Strand Viðarsdóttir, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
Flóki Ásgeirsson, tilnefndur af dómsmálaráðuneyti,
Védís Helga Eiríksdóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis,
Sigurður Guðmundsson, tilnefndur af Læknadeild Háskóla Íslands
Henry Alexander Henrysson, tilnefndur af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Varamenn

Reynir Tómas Geirsson, skipaður án tilnefningar,
Hafrún Kristjánsdóttir, skipuð án tilnefningar,
Stefán Baldursson, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneyti,
Elías Freyr Guðmundsson, tilnefndur af Embætti landlæknis,
Guðrún Valgerður Skúladóttir, tilnefnd af Læknadeild Háskóla Íslands,
Helga Þorbergsdóttir, tilnefnd af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila