
Andstaða við aðild Noregs að Evrópusambandinu mælist meiri en stuðningur samkvæmt nýrri skoðanakönnun Sentio Research. 48,5% Norðmanna myndu greiða atkvæði gegn ESB-aðild ef þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram nú en 29,7% myndu greiða atkvæði með aðild. 21,8% eru óákveðin.
Könnunin var gerð fyrir norsku dagblöðin Nationen og Klassekampen dagana 17.–24. september. Alls tóku 1.000 Norðmenn 18 ára og eldri þátt í henni. Skekkjumörk könnunarinnar hafa ekki verið birt.
Nei-hliðin styrkist
Í sambærilegri könnun í ágúst sögðust 47,7% myndu greiða atkvæði gegn aðild en 31,5% með henni. Hlutfall þeirra sem myndu segja nei hefur því hækkað um 0,8 prósentustig á einum mánuði en stuðningur við aðild lækkað um 1,8 prósentustig. Samkvæmt norsku miðlunum hefur nei-hlutfallið ekki mælst hærra síðan í nóvember 2023.
Könnunin var framkvæmd eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi þar sem kjósendur höfnuðu því að halda áfram ferli vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB. Klassekampen fjallar um niðurstöðurnar undir þeim formerkjum að ekki sjáist merki um að niðurstaðan á Íslandi hafi veikt nei-hliðina í Noregi.
48% vilja kosningu um viðræður
Á sama tíma vilja 48% Norðmanna þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Noregur eigi að hefja viðræður við ESB. 27% eru því andvíg og 25% óákveðin. Spurningin hefur ekki verið lögð fyrir í fyrri könnunum og því liggja ekki fyrir samanburðartölur.
Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, sagði við Nationen að niðurstöðurnar breyttu ekki afstöðu ríkisstjórnarinnar. Hún hefði engin áform um að hefja viðræður við ESB um aðild Noregs.
