
Júlíus Valsson skrifar:
Það var lengi siður á íslenskum sveitabæjum að einhver færi út á hlað á morgnana að gá til veðurs. Á bænum þurfti að ákveða hvort ætti að slá túnið og niðri við sjó var maður með höndina á landfestinni að velta fyrir sér hvort hann ætti að leysa. Hvorugur hafði nema stutta stund til umráða. Þó gaf sjómaðurinn sér yfirleitt tíma til að líta á brimið í víkinni áður en hann tók endanlega ákvörðun.
Nýr veðurvefur kostar milljarð
Nú má ýta með fingri á víkina á nýjum vef Veðurstofu Íslands og fá veðurspá fyrir þann tiltekna blett. Þetta heitir punktaspá og er einkar þægilegt fyrir þann sem enn liggur í rúminu. Gamli vefurinn var orðinn um tvítugt og átti stundum til að gefast upp þegar eldgos hófst og öll þjóðin vildi vita hvar það væri. Það var skynsamlegt að bæta úr því.
Verkið tók fimm ár og kostaði 460 milljónir króna. Veðurstofustjóri telur að viðhaldið muni kosta 50 til 70 milljónir á ári. Sé miðað við 60 milljónir verður kostnaðurinn kominn í sléttan milljarð eftir níu ár. Fyrir það fé má þjóðin vænta þess að komast inn á vefinn í vondu veðri. Þá er bara eftir að vita hvort veðrið er eins og stendur á skjánum.
Bóndin og sjómaðurinn
Ég legg til að Veðurstofan ráði tvo eldri menn, bónda og sjómann. Í starfslýsingunni nægðu þrjú orð: „Gá til veðurs.“ Veðurathugunarmenn hafa auðvitað sinnt mælingum um land allt í meira en hundrað ár. Hitt væri gaman að vita hvort nokkur hafi fengið starf á Veðurstofunni á þeim forsendum einum að hafa þurft að ákveða, dag eftir dag og á eigin ábyrgð, hvort óhætt væri að róa eða óhætt að slá.
Bóndinn man eftir því þegar hann treysti þurrkspánni betur en skýjabakkanum sem sat á sama fjallinu fram undir hádegi. Hann man það vegna þess að hann þurfti sjálfur að snúa heyinu viku eftir viku. Sjómaðurinn veit hvar fer að brjóta á leiðinni heim þótt enn sé sléttur sjór við bryggjuna. Þessa vitneskju hafa menn stundum keypt dýru verði. Á sjó gat röng ákvörðun kostað mannslíf.
Gervigeindin gáir ekki til veðurs
Reiknilíkönin ná yfir heilt úthaf. Þar hafa þau talsvert forskot á bóndann. En þegar milljörðum hefur verið varið í tölvubúnað og gervigreind getur spáin fyrir hans tún enn verið kolröng. Þá væri fengur að því fyrir veðurfræðing á vakt að geta hringt í gamla manninn og spurt hvað hann sæi til fjallsins. Bóndinn gæti jafnvel tekið símann á leiðinni inn.
Taxtinn er klár og kemur frá Utanríkisráðuneytinu
Eftir er að semja um kaupið. Þar hefur utanríkisráðuneytið sem betur fer unnið ágætt undirbúningsstarf. Í samningi þess við Nebraska ehf. var gert ráð fyrir 1.750.000 krónum á mánuði án virðisaukaskatts fyrir allt að 25 stundir á viku af „stefnumótandi ráðgjöf og verkefnum fyrir utanríkisráðherra“. Greiðslurnar urðu alls 14 milljónir. Á flestum reikningunum dugði orðið „ráðgjöf“.
Sé sami taxti lagður til grundvallar gætu bóndinn og sjómaðurinn hvor um sig sent Veðurstofunni reikning upp á eina milljón og sjö hundruð og fimmtíu þúsund á mánuði. Það væri raunar dálítið rausnarlegt fyrir að gá til veðurs. Því mætti orða verkið svo í samningnum að þeir veittu veðurstofustjóra stefnumótandi ráðgjöf um horfur á þurrki og útlit til sjávar. Þá er upphæðin kunnugleg og ætti að komast athugasemdalaust í gegnum bókhaldið.
Einn hængur er þó á þessu fyrir gömlu mennina. Segi bóndinn að það verði þurrt fram á kvöld og byrji að rigna um hádegi veit öll sveitin hvað hann ráðlagði og hvernig það reyndist.
Hann ætti að láta nægja að skrifa „ráðgjöf“ á reikninginn.
