
Aðalritstjóri rússneska ríkismiðilsins RT, Margaríta Simonyan, segir að þolinmæði rússnesks almennings gagnvart árásum Úkraínu á rússneskt yfirráðasvæði sé að þrotum komin og varar Evrópuríki við því að þau séu að „leika sér að eldinum“ með stuðningi sínum við Kænugarð.
Í viðtali við svissneska miðilinn Die Weltwoche heldur Simonyan því fram að Úkraína geti ekki framkvæmt árásir djúpt inn í Rússland án aðstoðar og njósnaupplýsinga frá vestrænum ríkjum. Að hennar sögn sé það því í raun Evrópa, en ekki Úkraína ein, sem færi stríðið inn á rússneskt landsvæði.
Segir þolinmæði almennings á þrotum
Simonyan segir árásir með drónum og eldflaugum, truflanir á flugsamgöngum og vandamál í eldsneytisframboði hafa haft sífellt meiri áhrif á daglegt líf almennings í Rússlandi. Hún telur að samfélagið sé að nálgast þolmörk sín og að aukinn þrýstingur kunni að myndast á Vladímír Pútín Rússlandsforseta um harðari viðbrögð.
„Fólk er hrætt við að sofa á næturnar. Hvar liggja mörkin þegar fólkið segir: við verðum að bregðast við? Ég veit það ekki, en ég held að þau séu mjög nálægt. Mjög nálægt. Núna eruð þið að leika ykkur að eldinum,“ sagði Simonyan.
Segir Evrópu bera þunga ábyrgð
Í viðtalinu segir Simonyan að evrópsk ríki beri þunga ábyrgð á því að átökin hafi stigmagnast með því að veita Úkraínu hernaðaraðstoð sem geri mögulegar árásir langt inn fyrir rússnesk landamæri.
Ummælin falla á sama tíma og Rússland og Úkraína hafa á undanförnum mánuðum aukið gagnkvæmar árásir á skotmörk langt frá víglínunni og spennan milli Rússlands og vestrænna ríkja hefur farið vaxandi.
