
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Í september var réttað um allt land eins og gert hefur verið síðan fyrir daga eyðublaðanna. Féð kemur af fjalli í einni breiðu og hver kind er dregin í sinn dilk eftir markinu sem hún fékk nokkurra daga gömul. Enginn spyr hvernig sumarið hafi verið eða hvað úr henni varð. Menn líta á eyrnamarkið og málið er afgreitt. Við börn er farið mildilegar að. Markið er ekki skorið í eyrað heldur fært í sjúkraskrá. Undirritaður tilheyrir stéttinni sem heldur þar um pennann (og lyklaborðið).
Fimmti hver
Íslendingar eiga heimsmet í notkun ADHD-lyfja. Samkvæmt grein fjögurra lækna í Læknablaðinu 2024 leystu 14,7 prósent barna og unglinga sjö til sautján ára út slík lyf árið 2023. Meðal drengja tólf til sautján ára var hlutfallið 20,1 prósent. Séu þeir taldir með sem einhvern tíma hafa fengið lyfin verður talan 22,5 prósent.
Stórar erlendar rannsóknir meta algengi ADHD hjá börnum og unglingum á 3,4–7,2 prósent. Árið 2022 notuðu Íslendingar tíu til fjörutíu og fjögurra ára ADHD-lyf rúmlega þrefalt meira en Svíar og rúmlega þrettánfalt meira en Norðmenn.
Læknarnir bentu á að ekkert líffræðilegt próf væri til fyrir ADHD. Greiningin byggist á mati á því hvenær einkenni teljast hamlandi. Sé þröskuldurinn lækkaður fjölgar greiningum. Niðurstaða þeirra var afdráttarlaus: ADHD væri „ofgreint, líklega verulega ofgreint“ hér á landi.
Hvað með einhverfu?
Í samevrópskri rannsókn frá 2020 höfðu 3,13 prósent íslenskra barna sjö til níu ára verið greind með einhverfu árið 2015. Í Danmörku var hlutfallið 1,26 prósent og í Finnlandi 0,77. Höfundarnir töldu muninn meðal annars skýrast af því hvernig leitað er að greiningum og hvernig þær eru veittar.
Það er a.m.k. ástæða til að spyrja hvort finnsk börn séu í raun fjórfalt sjaldnar einhverf en íslensk.
Greining getur hjálpað en hún hverfur ekki
Ómeðhöndlað ADHD getur skaðað skólagöngu og aukið hættu á fíkn. Lyfjameðferð bætir lífsgæði margra. Stúlkur fóru lengi fram hjá kerfinu og greining getur verið forsenda stuðnings í skóla. Foreldri sem sér barn sitt blómstra eftir rétta greiningu þarf enga tölfræði til að vita hvers virði hún er.
Vandinn er annar. Hvað verður um þá sem fá greiningu sem þeir þurftu aldrei á að halda?
Greining sem barn fær níu ára hverfur ekki úr sjúkraskrá. Tíu árum síðar getur viðkomandi þurft að svara því hvort hann hafi einhvern tíma verið greindur eða tekið ADHD lyf.
Það getur skipt máli við flugnám. Bresk flugmálayfirvöld útiloka ekki umsækjanda með fyrri ADHD-greiningu en krefjast mats. Bandarísk yfirvöld telja ADHD-lyf ósamrýmanleg hreinu heilbrigðisvottorði og geta krafist ítarlegrar endurskoðunar greiningarinnar. Ungur maður sem fékk metýlfenídat í fjórða bekk getur því þurft um tvítugt að verja tíma og fé í að sanna að hann sé laus við það sem fullorðnir sögðu honum að hann hefði.
Tryggingafélög líta einnig á heilsufar þegar áhætta og verð eru metin.
Bretar eru byrjaðir að telja
Í Bretlandi er nærri milljón fólks sextán til tuttugu og fjögurra ára hvorki í námi né vinnu. Í skýrslu Alan Milburn í vor kom fram að ungmenni með skráðar sérþarfir væru 80 prósent líklegri en önnur til að lenda þar. Sterkasta einstaka vísbendingin var formleg stuðningsáætlun í skóla.
Fylgni er ekki orsök. Milburn orðaði samt vandann sjálfur þannig að greining yrði of oft að hliði inn í heilbrigðis- og bótakerfið og út af vinnumarkaði.
David Land við UTC South Durham benti sama dag á að í sumum breskum skólum þyrfti nærri helmingur nemenda sérstakan stuðning. Þegar helmingur barnanna passar illa inn í kerfið vaknar sú óþægilega spurning þ.e. hvort eitthvað sé að börnunum eða er kerfið gallað?
Tossabekkurinn á ganginum
Eldri lesendur muna þegar börnum var raðað í bekki eftir lestrarkunnáttu og allir vissu hvar „tossabekkurinn“ var. Það var líka gert af umhyggju og eftir bestu þekkingu. Samt fylgdi stimpillinn sumum lengur en lestrarörðugleikarnir.
Íslensku læknarnir kölluðu 2024 eftir úttekt á greiningarkerfinu. Grænbók heilbrigðisráðuneytisins fór í samráð og þar var þversögnin viðurkennd: Fleiri fá greiningar og lyf hér en í nágrannalöndum, en biðlistarnir lengjast samt. Samráði lauk í febrúar 2025.
Síðan hafa liðið tuttugu mánuðir af greiningum.
Bóndinn markar lambið að vori vegna þess að hann ætlar að þekkja það aftur að hausti og koma því heim. Við höfum markað rúmlega fimmta hvern ungling í landinu af engu minni vandvirkni.
Og nú styttist í réttirnar.
