
Júlíus Valsson skrifar:
Breska fagtímaritið Pulse birti í vikunni könnun meðal 829 heimilislækna. Sjö af hverjum tíu telja ADHD ofgreint hjá fullorðnum og tæpur helmingur mjög ofgreint. Læknir í Berkshire hafði vísað rúmlega þúsund manns í mat og einn kom til baka án greiningar. Starfsbróðir hans í Dorset hafði aldrei séð einkarekna stofu skila neikvæðri niðurstöðu. Próf sem enginn fellur á mælir ekki neitt.
Bretum er brugðið og ríkisstjórnin hefur falið prófessor Peter Fonagy að fara í saumana á málinu. Tilefnið er að um 238.000 manns fá ADHD-lyf í hverjum mánuði, innan við hálft prósent íbúa Englands. Hér á landi fengu um 6,5% þjóðarinnar slík lyf á fyrstu níu mánuðum ársins 2024. Það sem Bretar kalla faraldur myndi á Íslandi teljast lyfjaskortur.
Hvernig er staðan hér á landi?
Íslensku tölurnar eru úr grænbók heilbrigðisráðuneytisins frá desember 2024. Íslendingar notuðu 66,5 dagskammta af ADHD-lyfjum á hverja þúsund íbúa á dag árið 2023, um þrefalt meira en Danir, Norðmenn og Svíar, og fullorðnir standa undir 80% notkunarinnar. Alþjóðlegar rannsóknir meta algengi ADHD hjá fullorðnum um 2,5%, en samkvæmt rannsókn í Læknablaðinu fengu 9,4% karla og 11% kvenna á aldrinum 18–44 ára lyfin árið 2023 og 17,7% drengja á aldrinum 7–17 ára. Annaðhvort eru Íslendingar erfðafræðilegt undur eða eitthvað er bogið við greiningarnar. Nefndin að baki grænbókinni velkist ekki í vafa um að gæðum greininga sé ábótavant, lyfjum beitt í of ríkum mæli og meðhöndlunin komin langt fram úr algengi heilkennisins.
Skýringarnar eru í sömu skýrslu. Stór hluti greininga fullorðinna fer fram á einkastofum og enginn veit hve vel klínískum leiðbeiningum er fylgt þar. Fagaðilar sögðu nefndinni að mismunagreiningum væri oft áfátt. Einbeitingarskortur fylgir streitu, kulnun, svefnleysi og vefjagigt, og bresku læknarnir bættu við að áföll og erfið æska fengju litla athygli í matinu. Greiðslukerfið getur umbunað fyrir fjölda greininga og enginn heldur skrá yfir hve margar þær eru.
Hvers konar lyf er um að ræða?
Þetta eru amfetamín og náskyld efni, flokkuð með ópíóíðum þegar kemur að ávanahættu. Grænbókin minnir á að allir finni fyrir auknum afköstum og sjálfsöryggi af lyfjunum, hvort sem þeir eru með ADHD eða ekki, og að hætta á þolmyndun og ávana vaxi með skömmtunum. Um fimmtungur þeirra sem fylgt er eftir í heilsugæslu er á hærri skömmtum en skráning lyfjanna gerir ráð fyrir.
Afleiðingarnar eru farnar að sjást. Rannsókn Lauren Moran og félaga við McLean-sjúkrahúsið, birt í American Journal of Psychiatry 2024, náði til fólks á aldrinum 16–35 ára og þar rúmlega fimmfölduðu háir amfetamínskammtar líkur á geðrofi eða maníu. Grænbókin staðfestir að geðrof greinist hérlendis í tengslum við ADHD-lyf og að tilfellum fjölgi með fleiri notendum og hærri skömmtum. Íslensk rannsókn sýndi að metýlfenídat var um tíma helsti vímugjafi þeirra sem sprauta sig í æð, og bandarísk yfirlitsgrein ályktar að 5–35% háskólanema misnoti lyfin. Lyf sem ávísað er í þessu magni ratar víðar en til þess sem fékk lyfseðilinn. Langtímaáhrifin eru illa þekkt, þótt vísbendingar séu um háþrýsting og slagæðasjúkdóma. Meira en helmingur karla á aldrinum 18–44 ára sem hafið hafa meðferð hefur hætt henni, sem segir sitt um hve vel greiningin átti við.
Hvað með börnin okkar?
Barn með hamlandi ADHD hefur ótvírætt gagn af vandaðri meðferð og á heimtingu á henni. Hættan liggur hjá hinum, unga fólkinu sem fær ávanabindandi örvandi lyf við vanda sem á sér aðrar rætur. Þar er hætt við að sáð sé til fíknar og geðræns vanda sem kerfið fær síðar í fangið. Á meðan bíða hátt í þrjú þúsund fullorðnir eftir mati hjá opinbera ADHD-teyminu, að sögn formanns ADHD samtakanna, en einkastofur auglýsa nokkurra vikna bið án tilvísunar. Þeir verst settu bíða lengst.
Úrræðin liggja fyrir. Skrá þarf allar greiningar miðlægt, krefjast vottunar af þeim sem greina og láta mat á raunverulegri hömlun ráða því hverjir fá lyf. Nefndin lagði auk þess til að fella niður kröfu um lyfjaskírteini fyrir atomoxetín, sem er án ávanahættu.
Íslenskt heimsmet en enginn gerir neitt
Árið 2010 benti alþjóðafíkniráð Sameinuðu þjóðanna íslenskum stjórnvöldum á að hvergi í heiminum væri notað meira af metýlfenídati. Síðan hefur notkunin vaxið nær óslitið. Bretar láta rannsaka málið við hálft prósent. Við sitjum með grænbók í skúffunni og heimsmet sem enginn vill kannast við.
Höfundur er læknir.
