Aðsend grein: Kjósendur völdu sannleika yfir lygar – “Trans og vók er brók” 

Íris Erlingsdóttir skrifar frá Bandaríkjunum:

Nú, þegar Demókratar hafa áttað sig á því að meirihluti kjósenda telur þá ekki vera með öllum mjalla, eru þeir loksins að ræða vandamálið opinskátt. Sérfræðingar Demókrata í almannatengslum viðurkenna nú opinskátt að trans hugmyndafræðin, sem Biden-Harris stjórnin og trans-aðgerðasinnar hafa troðið upp á landsmenn og allar stofnanir þjóðarinnar eru gríðarlegt vandamál fyrir flokkinn. 

Samkvæmt niðurstöðum Blueprint, almannatengslafyrirtækis sem vinnur fyrir Demókrata, voru sveiflukjósendur – þ.e. fólkið sem réði úrslitum kosninganna – mjög óánægðir með áherslur Kamölu Harris á trans málefni. Reyndar voru skoðanir hennar varðandi þessi mál  mikilvægasta málið í hugum þeirra.

Hér má sjá niðurstöðurnar varðandi þennan hóp kjósenda. Aðalástæðan fyrir því að kjósa Trump fram yfir Kamölu Harris: “Harris einbeitir sér meira að ‘culture war’ málefnum, eins og trans málefnum í stað þess að leggja hjálpa venjulegum Ameríkönum.”  Næst mikilvægasta málið var verðbólga og þar á eftir ólöglegir innflytjendur. 

Þetta þýðir ekki að trans málefni eins og sér hafi verið efst í huga kjósenda, heldur snýst þetta um mun mikilvægara grundvallaratriði. Kjósendur líta á trans hugmyndafræðina sem árás á sannleikann, á raunveruleikann og almenna skynsemi, sem er nákvæmlega það sem þessi hugmyndafræði er. 

Trans hugmyndafræði krefst þess að við staðfestum lygar og  höfnum hlutlægum raunveruleika á þeim forsendum að það sé  „mannúðleg“ nálgun. En það er ekkert mannúðlegt við að ljúga –  sérstaklega þegar tilgangurinn er að ljúga um grundvallaratriði mannlegrar tilveru og eðlis. Ef hægt er að ljúga að okkur varðandi þessi atriði, þá er hægt að ljúga að okkur varðandi hvað sem er.

Ef raunveruleikinn er huglægur, getum við ekki lengur talað saman, því síður leyst vandamál. Trans hugmyndafræðin byggir á þeirri forsendu að allir hafi sinn eigin sannleika og að það sé enginn hlutlægur raunveruleiki eða algildur sannleikur til, sem við öll verðum að viðurkenna, hvort sem okkur líkar betur eða verr. 

Ef við samþykkjum trans hugmyndafræði, þá samþykkjum við þessa forsendu. Við getum þá ekki kallað neitt ósatt, né heldur getum við kallað neitt satt. Þetta er mikilvægasta ástæðan fyrir baráttunni  gegn trans hugmyndafræði. 

Niðurstöður kosninganna voru ótvíræðar: bandarískir kjósendur hafa neitað að staðfesta lygar. Annað hvort er eitthvað satt eða ekki. Að staðfesta sannleikann er ekki “hatur,” heldur algjört lágmark sem þarf til að tryggja starfhæft samfélag. 

Demókratar og stjórnmálamenn um allan heim hafa nú valkosti. Þeir geta annað hvort valið að viðurkenna raunveruleikann eða þeir geta lagt enn meiri áherslu á fáránleika. Ef þeir velja seinni kostinn, munu þeir halda áfram að ofsækja almenning og heimta ritskoðun. Hvorn kostinn sem þeir kjósa, er ljóst að kjósendur hafa gert upp hug sinn. Þeir hafa ákveðið að ekkert er mikilvægara en að staðfesta raunveruleikann. 

Screenshot
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila