
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Sænskir barnalæknar hvetja foreldra, afa og ömmur og aðra aðstandendur og umsjónarmenn barna við því að fara mjög gætilega með hormónalyf sem borin eru á húð, einkum estrógen- og testósteróngel, smyrsl og úða. Börn geta tekið hormónin upp um húð eftir nána snertingu við þann sem notar lyfið og jafnvel mjög lítil börn geta þá sýnt einkenni snemmkominn kynþroska.
Raunveruleg hætta
Dagens Nyheter greinir frá því að sænskir læknar hafi séð börn allt niður í tíu mánaða aldur fá brjóstastækkun, kynhár og óvenju hraðan líkamsvöxt eftir að hafa komist í snertingu við slík hormón. Sænska lyfjastofnunin hefur frá 2019 fengið 20 tilkynningar um aukaverkanir hjá börnum sem tengdar eru estrógeni og sjö vegna testósterónlyfja. Barnalæknirinn Anna Olivecrona við Karolinska-sjúkrahúsið telur að tilkynnt tilfelli kunni aðeins að vera hluti raunverulegs fjölda.
Börnin fá lyfin ekki sjálf. Hormónin berast frá fullorðnum sem nota þau, til dæmis við húðsnertingu eftir að gel eða úði hefur verið borinn á handlegg, læri eða annan líkamshluta. Börn eru sérstaklega viðkvæm þar sem húð þeirra er þynnri og lítið magn hormóns getur haft hlutfallslega mikil áhrif.
Bandaríska lyfjaeftirlitið FDA hefur lengi varað við sams konar hættu vegna testósteróngels. Þar hafa verið skráð tilfelli þar sem börn fengu stækkuð kynfæri, kynhár, aukinn vöxt og hraðari beinþroska eftir óbeina snertingu við lyfið. Sum einkennanna gengu til baka þegar útsetningu lauk, en ekki í öllum tilvikum.
Hvað skal gera?
Mikilvægustu varúðarráðleggingarnar eru einfaldar: Þvo skal hendur vandlega með sápu eftir að hormónalyf hefur verið borið á, leyfa því að þorna og hylja meðhöndlaða húð með fatnaði. Forðast skal að barn snerti nýsmurða húð og þvo meðhöndlaða svæðið áður en búast má við náinni húðsnertingu. Ef barn snertir slíkt svæði ætti að þvo húð barnsins með sápu og vatni sem fyrst.
Foreldrar og aðrir aðstandendur ættu sérstaklega að hafa þetta í huga á heimilum þar sem hormónagel, smyrsl eða úðar eru notaðir. Ef barn fær óvænta brjóstamyndun, kynhár, óvenju hraðan vöxt eða breytingar á kynfærum er rétt að leita læknis og nefna sérstaklega hvort einhver á heimilinu noti hormónalyf.
