AfD með flest atkvæði í Mecklenburg-Vorpommern – Sögulegt afhroð CDU sem fellur af þingi

AfD er stærsti flokkurinn í þingkosningunum sem fram fóru í Mecklenburg-Vorpommern í Þýskalandi í dag samkvæmt nýjustu útreikningum. Flokkurinn fær 38,3% atkvæða en SPD, flokkur Manuela Schwesig forsætisráðherra sambandslandsins, fær 35,4%. CDU flokkur Merz er kominn niður í 4,9% og er því samkvæmt þessum tölum fallinn af þingi enn er verið staðfesta niðurstöður úr talningu frá nokkrum talningarstöðum.

CDU undir 5% þröskuldinum

Samkvæmt nýjustu útreikningum Infratest dimap fyrir ARD, sem birtir voru klukkan 21:47 að þýskum tíma, fær AfD 38,3% atkvæða og SPD 35,4%. Munurinn á flokkunum er því 2,9 prósentustig.

Die Linke er þriðji stærsti flokkurinn með 6,5% og Græningjar fá 5,5%. CDU og BSW mælast hins vegar báðir með 4,9%.

Þar með eru CDU og BSW samkvæmt núverandi tölum undir 5% þröskuldinum og ná ekki kjörnum fulltrúum inn á þing Mecklenburg-Vorpommern. Tölurnar eru þó enn útreikningar en ekki endanleg kosningaúrslit og geta því breyst eftir því sem talningu vindur fram.

Sögulegt afhroð CDU

Fyrstu tölur ARD þegar kjörstöðum var lokað sýndu CDU með 5,5%. Fylgi flokksins hefur síðan lækkað eftir því sem fleiri raunveruleg úrslit hafa komið inn í útreikningana og er nú komið niður í 4,9%.

CDU fékk 13,3% í kosningunum árið 2021 og hefur því tapað 8,4 prósentustigum. Verði niðurstaðan staðfest yrði þetta í fyrsta sinn sem CDU nær ekki 5% þröskuldinum í kosningum til þings þýsks sambandslands.

AfD bætir hins vegar verulega við sig. Flokkurinn fékk 16,7% árið 2021 en mælist nú með 38,3%, sem er aukning um 21,6 prósentustig. SPD fer úr 39,6% í 35,4%.

Núverandi ríkisstjórn missir meirihlutann

SPD og Die Linke hafa farið saman með stjórn Mecklenburg-Vorpommern á kjörtímabilinu en samkvæmt núverandi tölum hafa flokkarnir ekki lengur meirihluta.

AfD yrði samkvæmt þessum tölum stærsti flokkur sambandslandsins.

Töflu með nýjustu tölum sem uppfærast sjálfkrafa má skoða hér að neðan

Kosningarnar í Mecklenburg-Vorpommern
Sæki nýjustu kosningatölur…
Flokkur Fylgi Staða
Sæki niðurstöður…
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila