
Júlíus Valsson skrifar
Á miðöldum gátu syndarar keypt sér aflátsbréf. Þau hreinsuðu samviskuna en breyttu engu um syndina. Íslendingar eru nú komnir í svipaða stöðu gagnvart Evrópusambandinu, með þeim mun að hér er syndin vandfundin.
Hvergi í heiminum er framleitt meira rafmagn á hvern íbúa en á Íslandi, og nær allt kemur það úr fallvötnum og jarðhita. Um níu tíundu hlutar húshitunar koma frá jarðvarma. Það sem aðrar þjóðir kalla orkuskipti og ætla að ljúka einhvern tíma á öldinni kláruðu Íslendingar á síðustu öld. Það gerðu þeir án styrkja frá Brussel. Fyrir þetta fáum við nú digran reikning.
Skuldbindingar vegna EES
Samkvæmt skuldbindingu sem tekin var upp í gegnum EES á Ísland að draga úr svonefndri samfélagslosun um 41 prósent frá 2005 til 2030. Á tuttugu árum hefur hún minnkað um tíu prósent, og Umhverfis- og orkustofnun spáir 21 prósenti í lok áratugarins. Það sem á vantar þarf að borga fyrir, kaupa frá Brussel. Ráðherrann sjálfur hefur nefnt minnst ellefu milljarða króna. Á núverandi markaðsverði væri reikningurinn nær tuttugu milljörðum.
Þetta er aðeins sá hluti sem sést. Ríkið hefur þegar afsalað sér hátt í tíu milljörðum í tekjum með því að leggja til hliðar losunarheimildir sem annars hefðu verið seldar. Hin rómaða sérlausn fyrir flugið var kynnt sem sigur hagsmunagæslunnar. Hún felst í því að íslenska ríkið greiðir flugfélögunum úr eigin vasa. Á næsta ári nemur sú greiðsla 3,2 milljörðum, sömu upphæð og skorin er af Loftslags- og orkusjóði. Íslensk fyrirtæki greiddu 5,5 milljarða fyrir losunarheimildir árið 2024, og Viðskiptaráð áætlar að upphæðin verði komin í 27,8 milljarða árið 2030. Við bætast milljarðarnir sem runnu sem gjafir ríkisins til bílaleiga í nafni loftslagsins, á meðan losun frá vegasamgöngum jókst.
Frá 2017 til 2024 runnu samkvæmt opinberu svari ráðherra 144,3 milljarðar króna til loftslagstengdra aðgerða ríkisins. Þar eru meðal annars skattstyrkir, ívilnanir vegna ökutækja, samgöngur, hleðsluinnviðir, landgræðsla, skógrækt og ýmsar beinar loftslagsaðgerðir. Fyrir tímabilið 2025–2029 voru síðan áætlaðir aðrir 113,5 milljarðar.
Hvað fæst fyrir peningana? Varla annað en að sleppa við skammkrókinn. Álver knúið vatnsafli fellur undir sama kerfi og kolakynt verksmiðja í Póllandi. Verði framleiðslan of dýr hér flyst hún þangað sem kolin brenna, og þá eykst losun heimsins. Í Brussel virðist enginn kippa sér upp við það.
Er kolefnishlutleysið raunhæft markmið?
Nú hefur sjálfur loftslagsráðherrann tekið undir með efasemdarmönnum. Í frétt RÚV í dag segir Jóhann Páll Jóhannsson óvíst að 41 prósenta markmiðið náist og efast um að kolefnishlutleysi árið 2040 sé yfirleitt raunhæft. Hann kallar hugtakið nánast marklaust, þótt það sé bundið í lög og stjórnarsáttmála. Hreinskilnin er virðingarverð. Ályktunina sem af henni leiðir hefur hann þó ekki dregið.
Sú ályktun er einföld. Ef markmiðin eru óraunhæf á Ísland ekki að greiða tugi milljarða fyrir að ná þeim ekki. Samfélagslosunarkerfið var hannað fyrir ríki sem kynda hús sín með kolum og gasi. Þar er auðvelt að skera niður, því af nógu er að taka. Hér hefur það þegar verið tekið sem tekið verður. Eftir standa fiskiskipin, sauðféð og fólksbílarnir á hringveginum.
Hótanir og ofríki ESB
Menn skyldu heldur ekki ímynda sér að góð hegðun verði launuð. Þegar Evrópusambandið lagði verndarráðstafanir á kísiljárn síðastliðið haust fékk Ísland enga undanþágu, þrátt fyrir harða baráttu stjórnvalda. Landið hafði þó samviskusamlega tekið upp hvert loftslagsákvæðið á fætur öðru. Elkem á Grundartanga hefur í kjölfarið slökkt á einum ofni.
Ísland á að hefja viðræður innan EES um að losa sig undan samfélagslosunarkerfinu og endursemja um þátttöku í ETS á forsendum sem taka mið af því að orkan hér er þegar hrein. Parísarsamkomulagið stendur eftir sem áður. Þar getur Ísland sett sér markmið sem hæfa íslenskum aðstæðum og staðið við þau án milligöngu uppboðsmarkaðar í Leipzig. Slíkt fæli í sér ábyrgð á eigin forsendum.
Aflátsbréfin hreinsuðu aldrei neinn. Þau fylltu aðeins gullkisturnar í Róm.
